Greiðslur, áskriftir og reikningar
Ein vefþjónusta fyrir allar greiðslur
Taktu á móti greiðslum í þínu kerfi á öruggan máta.
curl https://auk.example/v1/checkout-sessions \
-H "Authorization: Bearer auk_test_…" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{
"amount": 489000,
"currency": "ISK",
"reference": "order-1001",
"returnUrl": "https://shop.example/thanks"
}'Allt sem liggur á milli kerfisins þíns og kortanetsins
Greiðslusíða og vistuð kort
Greiðslusíða í þínum lit og með þínu merki, vistuð kort fyrir eins-smells- og endurteknar greiðslur, endurgreiðslur og heimildir.
Áskriftir og reikningar
Vörur og verð, áskriftir með prufutíma og hlutfallslegri gjaldfærslu, notkun, afslættir og reikningar með íslenskri númeraröð og PDF.
Þjónustusíða viðskiptavina
Viðskiptavinir sýsla sjálfir með áskriftir, kort og reikninga og skrá sig inn með kóða í tölvupósti.
Vefkrókar og fullur rekjanleiki
Undirritaðir vefkrókar fyrir hvern atburð og greiðsluskrá þar sem hvert skref er keðjað svo breytingar sjáist.